|
|
31.01.2010 17:38:08 / unnuro
Vil byrja á því að óska Íslendingum til hamingju með bronsið í dag! Frábærir leikir að baki Órtúlega gaman að fylgjast með mótinu!
Við Thomas vorum í vinnunni í dag (í leikhúsinu). Og sýning dagsins var Mariinsky ballettinn, líklega heimsis virtasti ballett! Ótrúlega falleg sýning og náttúrlega snilld að vera á launum og sjá þetta. Konfekt fyrir augun 
Í gærkvöldi komu tveir vinir hans Thomas og við sötruðum smá vín og spiluðum Scrabble. Ég, útlendingurinn, lenti í öðru sæti!! Hihihi 
Á morgun fáum við lyklana að nýju íbúðinni afhenta! Vúhú...þvílík tilhlökkun! Ég er í fríi á morgun þannig að við ætlum að nýta tímann vel, tengdapabbi kemur líka til okkar á morgun. Ekkert letilíf framundan... Ég er samt alveg hræðilega léleg að taka ákvarðanir, og þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig það er þegar maður er að fara að gera upp! Hvernig málingu eigum við að kaupa? Hvernig parket? Hvernig eigum við að hafa tröppuna?? Ó mæ! En þetta reddast allt, og vonandi verður íbúðin bara rosa fín! Ég ætla að smella nokkrum myndum á morgun, svona "before". Svo reyni ég að vera dugleg að taka myndir af íbúðinni á meðan vinnunni stendur, og síðan náttúrlega "after"!
Vil enda þessa færslu á að segja ykkur hneyksladi sögu! Við Thomas komum niðrí bílskúr á laugardag. Bíllinn okkar stendur innst í bílskúrnum og það eru engar myndavélar þarna. Við sjáum fyrst eitthvað far á húddinu á bílnum, eins og einhver hafi setið á honum. Svo við hliðina á bílnum var g-strengur og opið smokkabréf!!! Við erum þá að tala um það að einhver hafði mök á húddinu á bílnum okkar! Ó mæ god! Gott mál að við séum að fara að flytja héðan!
Jæja, verð að fara og taka bananabrauðið úr ofninum  Unnur
»
24.01.2010 18:24:59 / unnuro
21.jan var sólardagurinn í Tromsø! Og ég sá meira að segja sólina það rétt sást í hana kíkja á okkur í svona klukkutíma. En bjartari tímar bíða Síðastliðna viku var hin árlega kvikmyndahátíð í Tromsø, TIFF(Tromsø International Film Festival). Ég sá tvær myndir, eina finnska og eina japanska. Sú fyrrnefnda var mjög góð en síðari var of spes fyrir mig! Í gær fórum við Thomas í mat til Jennýar, svo fór ég út með nokkrum vinnufélögum. Ágætis kvöld alveg.
Ég bætti við nokkrum myndum á myndasíðuna mína. Hér er loksins mynd af teppinu sem ég prjónaði í haust, mjög ánægð með það...vona bara að það haldist fallegt í einhvern tíma!
 " class="pc_img" border="0" />
Lífið gengur sinn vanagang, ég í vinnunni og Thomas í skólanum. Ég byrja á dansnámskeiði núna í vikunni og ætla líka að reyna að skella mér í ræktina...þetta letilíf gengur ekki lengur! Thomas fór á ísveiðar í síðustu viku og fékk 3 flotta silunga...skelli inn mynd af þeim fjótlega. Þeir voru líka mjög góðir og runnu ljúflega niður 
Á morgun er bara vika í að við fáum íbúðina! Við erum búin að kaupa nokkur húsgögn, og farin að skipuleggja málingavinnu og svona. Tengadapabbi kemur 1.feb og verður í einhverja daga að hjálpa okkur 
Læt þetta duga í bili. Hér á bæ er algjör leti-sunnudagur. Sjónvarp og rólegheit 
Unnur
»
17.01.2010 18:10:19 / unnuro
Gleðilegt nýtt ár!Byrjum á smá desemberfréttum/jólafréttum: Á þorrláksmessu fórum við í mat til Jenny. Við vorum 7 saman og allir höfðu með sér veitingar. Ekki beint íslensk þorrláksmessa en þó mjög kósí  Á aðfangadag héldum við Thomas jól um morgunin. Borðuðum góðan morgunmat og opnuðum pakkana frá hvort öðru. Svo átti ég að mæta í vinnu kl 15:00! Thomas kom svo í vinnuna til mín því við áttum í raun að fá jólamat. EN það gleymdist víst að panta matinn fyrr um daginn þannig að við enduðum á að borða brauð með laxi og kjötáleggi...spes jólamatur að mínu mati! En jæja... Ég fékk að fara aðeins fyrr úr vinnunni og við Thomas brunuðum til foreldra hans. Vorum komin þangað um hálf 11 leytið um kvöldið. Fengum kaffi og kökur og opnuðum jólagjafirnar okkar Tengdapabbi var búin að búa til gátu handa hverjum og einum og svo þegar maður hafði leyst hana fékk maður skafmiða og átti séns á að vinna milljón...en það gerðist náttúrlega ekki! Hæsti vinningur var 25 kr norskar (500 kall) og það var frænka hans Thomas sem var svo heppin Á jóladag höfðum við það bara notalegt og slöppuðum af, svo var rjúpa í matinn...mjög gott! Við ástmaðurinn keyrðum svo heim til Tromsø um kvöldið, og á annan í jólum var ég á morgunvakt. Eftir vinnu keyrðum við aftur heim til foreldra hans Thomas (2. tíma keyrsla). Við græjuðum okkur í einum grænum og fórum í raun beint á 2. í jólum skemmtun. Tengdamamma var með í leikriti og lék hreindýr...sem var alveg ótrúlega fyndið! Eftir leikrit og smá veitingar var leikið fyrir dansi framm á nótt. Þann 27. des lá leið okkar aftur til Tromsø, eins og þið sjáið þá var mikið keyrt fram og tilbaka þessi jól, og við erum ákveðin í því að það verður ekki gert aftur. En það varð í raun að vera svona þessi jólin...helv.. vaktavinna  28.des hoppuðum við og skoppuðum í flug heim til Íslands, þvílík gleði! Siggi frændi sótti okkur á völlinn og við náðum að stoppa stutt í Ljósheimunum, áður en enn eitt flugið bar okkur alla leið til Akureyrar. Þar tóku mamma, Júlli og amma á móti okkur  Dvölin á Íslandi var yndisleg en dagarnir voru alltof fljótir að líða! Ég náði þó að fara í Sölden-gellu hitting, Dalvíkurdruslu hitting og 4A-gellu hitting! Ekkert smá gaman að fá að hitta svona marga, það var orðið alltof langt síðan ég hitti margar af þessum yndislegu stelpum Annars nýttum við tímann í að vera með fjölskyldunni, fórum aðeins í hesthúsin og slöppuðum af. Áramótin voru mjög fín, við fórum á brennuna og svo borðuðum við æðislegan mat. Eftir matinn tók sjónvarpið við og sá fyrir afþreyingju nánast fram að miðnætti, fréttaannálarnir og skaupið góða  Eins og vanaleg er skotgleðinn mikil á Dalvík og er alltaf frábært að horfa á alla flugeldana þegar klukkan nálgast 00:00! Við Thomas kíktum síðan til Kötu og við fórum svo öll á barinn, en við vorum nú ekkert mjög lengi. Eins og í fyrra fórum við á nýársdansleik að Rimum 2.jan. Það var mikið stuð og mikið dansað  4.jan var Eva systir svo góð að bruna með okkur, og ömmu Unni, suður til Reykjavíkur. Við fórum beint í mat til Dóru og fengum fiskisúpuna góðu...namm namm! Svo daginn eftir fórum við út til Tromsø, mér þykir alltaf jafn erfitt að kveðja...þó ég ætti kannski að vera farin að venjast því. Fyrstu dagarnir voru líka pínu erfiðir...saknaði Íslands, fjölskyldunnar og vinanna! En "back to real life", ég byrjaði stax að vinna á fullu og Thomas er byrjaður á síðustu önninni í masternum sínum.
Eftir 2 vikur fáum við nýju íbúðina okkar sem við erum búin að kaupa! Okkur hlakkar mikið til og erum farin að skoða og spá í parket, málingar og þess háttar. Við höfum hugsað okkur að nota þessa blogg síðu í að birta myndir og fréttir af lífinu í nýju íbúðinni
Ef þið komust í gengum þessa lesningu, endilega kvittiði. Unnur
»
20.12.2009 21:08:34 / unnuro
Ég ákvad ad skella inn smá færslu hédan frá Bardu (thar sem foreldrar hans Thomas búa). Verst er thó ad ég er ekki med íslenskt lyklabord...litla eplid mitt vard eftir í Tromsø. Í dag eru einungis 4 dagar í adfangadag og 8 dagar í ad ég komi heim! Jeremías..ég ida af tilhløkkun!  Thomas átti afmæli í gær, ég gaf honum nýjasta i-pod Nano og var líka búin ad láta grafa nokkur ord í hann  Um kvøldid bordudum vid gódann mat, og svo komu nokkrir vinir hans hingad. Vid søtrudum smá bjór ádur enn vid kíktum á barinn, thad var svona eins og búast mátti vid á litlum stad...ekki beint trodid en thó gód stemmning. Í dag erum vid mest buin ad slappa af, en vid fórum med tengdapabba ad høggva jólatré í skógi sem thau eiga. Voda kósí! Hér er líka búid ad snjóa thannig ad thad er mjøg jólalegt úti  Vid komum til Bardu á fimmtudagskvøldid og verdum hér til thridjudags en thá á ég ad mæta á kvøldvakt. Ég er á morgunvakt 23.des og svo kvøldvakt 24.des! Hef thetta stutt núna og skrifa frekar thegar ég verd komin aftur til Tromsø. Unnur
»
03.12.2009 13:10:18 / unnuro
Hér er loks farið að snjóa og fattaði ég þá að ég hafði saknað þess að standa úti í snjókomu og roki...það minnir mig líklega á Ísland, sem ég og sakna! Ég sit hér heima og hlusta á Jólsdiskinn með Mariah Carey, alltaf góður Við Thomas erum búin skreyta íbúðina, við eigum þó voða lítið skraut...en það er fínt því það er ekkert pláss fyrir heilan helling.Annars er það helst í fréttum að stórt fullorðinsskref hefur verið tekið - Við erum búin að kaupa íbúð! Í dag skrifuðum við undir papírana þannig að núna er allt frágengið og við fáum lyklana 1. febrúar 2010! Þetta er 100 fermetra, tveggja hæða íbúð og 3 svefnherbergi þannig að við getum tekið á móti fullt af gestum frá Íslandi! Við erum strax aðeins farin að plana þetta, ætlum aðeins að gera upp áður en við flytjum inn, við þurfum nefnilega ekki að vera farin úr íbúðinni sem við legjum núna fyrr en 1. mars. En nóg um þetta...Vil þó taka það fram að þetta þýðir ekki að ég verði í Noregi forever! Við erum bæði harðákveðin í að flytja til Íslands í framtíðinni, en það borgar sig ekki á meðan að kreppan er sem verst! Ég verð áfram með í anda og ætla að stofna "Ferðir-til-Íslands"-reikning og koma oftar Ég var á jólahlaðborði með vinnunni á laugardaginn síðasta og þar var sko fjör! Ég var komin heim kl 06 um morgunin og þá búin að dansa frá mér allt vit Núna um helgina ætla ég á dansnámskeið á laugardaginn. Ég er líka að vinna, kvöldvakt á laugardag og morgunvakt á sunnudag. Foreldrar Thomasar koma á sunnudaginn og ætla að gista. Við förum á jólatónleika á sunnudagskvöldið, það verður örugglega voða kósí! Ég er óskaplega sein í öllu jólastússi, er ekki byrjuð að skrifa jólakort og ekki búin að kaupa eina einustu gjöf! Ég hafði líka hugsað mér að baka aðeins fyrir jólin... Verð að fara að taka frá daga til þess að gera þetta allt, en mér finnst ég bara alltaf vera í vinnunni eða annars upptekin við annað. Ég skipulagsmanneskjan verð eiginlega bara skrifa "to-do" lista og svo byrja efst á honum Í prjónahlutverkinu er ég að standa mig! Teppið góða er löngu búið (ég hef bara ekki komið mér í að mynda það í bak og fyrir), og ég er ca hálfnuð með ullar-"hlíra"bol á sjálfa mig. En ég verð líklega að taka smá pásu frá honum því ég ætla að prjóna eina jólagjöf...já þið lásuð rétt, bara eina. Fólk í minni fjölskyldu hefur engan áhuga á prjónadóti í jólagjöf...Og ég veit reyndar ekkert hvað ég á að kaupa! Finnst alltaf mjög eftitt að kaupa jólagjafir, veit aldrei hvað ég á að kaupa! En jæja, verð að fá mér eitthvað í goggin, er á leiðinni á kvöldvakt!
Kvittið endilega þið sem lesið! Svo er eitt á "to-do" listanum: vera duglegri að blogga
»
16.11.2009 14:04:24 / unnuro
Ég var að vinna um helgina og er því í fríi í dag. Einstaklega gott að vera í fríi og slappa af heima, á meðan uppþvottavélin og þvottavélin vinna sín verk  Thomas er í skólanum og þegar hann kemur heim ætlum við að skella okkur í búðina. Við höfum verið dugleg við að gera stórinnkaup þannig að maður þurfi ekki að vera að fara út í búð nánast annanhvern dag, en það hefur eitthvað farið á mis síðustu vikur. Þannig að áður enn hann kemur heim ætla ég að skrifa lista og reyna að skipuleggja hvað verður í kvöldmat út vikuna Hann er búinn að panta "taco" í kvöld...namm namm! Mánudagur er annars dans-dagurinn hjá mér, en þá dansa ég frá kl hálf átta til tíu! Fyrst er hiphop námskeið sem ég er í hjá öðrum hóp sem heitir Cheza flava. Og svo liggur leiðin þaðan og beint í afríkanskan/dancehall tíma Ég er líka strax farin að hlakka til síðustu helgarinnar í nóv og fyrstu í des því þá er stefnan tekin á Hiphop og dancehall workshop! Helgin í Köben var æði! Við fórum frá Tromsø á fimmtudagskvöldi og gistum á hóteli á Gardemoen í Osló. Flugum svo frá Osló til Köben kl 07 á föstudagsmorgninum. Í Köben var bara ágætisveður, skýjað en rigningarlaust. Dálítið köld gola en maður lét það nú ekkert á sig fá! Á fösudeginum röltum við á Strikinu og versluðum aðeins...enda væri nú annað ekki hægt! Á laugardeginum komu Sara og Jens kærastinn hennar fra Helsingborg og áttum við góðan dag saman. Kaffihús og spjall, bjór og meira spjall Um kvöldið var okkur svo boðið í mat til vinafólks Thomasar - Thomas og Ida - Þau eru að læra í Köben og búin að fjárfesta í krúttlegri íbúð, gaman að koma til þeirra. Sunnudagurinn fór í afslöppun og siglingu um Köben, þar sem ég komst að því að litla hafmeyjan er svo sannarlega lítil! Borðuðum svo góðan mat og fengum okkur Tuborg Julebrygg i Nyhavn. Eldsnemma á mánudagsmorgninum áttum við svo flug aftur heim. Vorum komin heil á húfi til Tromsø kl 11 með margt nýtt í töskunum...þó engar jólagjafir. Ég verð víst að gera lista yfir jólagjafir og jólakort, desember nálgast og það hratt! Á miðvikudaginn erum við Thomas að fara á tónleika með Vamp, mikið hlakka ég til. Hef séð þá einu sinni áður en þá var ég að vinna, þess vegna vildi ég að við færum núna sem gestir á Kulturhuset og ekki vinnandi fólk!
En jæja...ég verð að fara að rífa mig frá tölvunni, ætla að klára að prjóna teppið mitt og ganga fra spottum og þess háttar...gott að loksins klára þetta teppi en það hefur tekið sinn tíma (ég mun setja inn mynd þegar það er alveg búið). Svo er líka á dagsskrá að halda áfram með "scrap-book'ina" frá sumrinu  En fyrst ætla ég að setja inn myndir frá Köben, tékk itt át!
Unnur
»
04.11.2009 21:02:51 / unnuro
Komin tími á nýtt blogg... Ég skal reyna að skella inn mynd af Blámanni á myndasíðuna mína fljótlega, við verðum bara að þrífa hann fyrst Annars setti ég inn nokkrar nýjar myndir um daginn, endilega kíkiði á þær!Hér gengur lífið svosem sinn vanagang. Ég var að vinna kvöldvaktir um helgina. Á föstudagskvöldið eftir vinnu fór ég í vinnupartý niðrí bæ og á laugardagskvöldinu eftir vinnu fór ég niðrí bæ á tónleika með Thomas og Jenny. Þannig að það var bara stuð helgi!  Á mánudaginn skelltum við Thomas okkur í bíó á This is it, mér fannst hún bara geggjuð enda var ég mikill aðdáandi Þvílík dansatriði í myndinni og auðvitað geggjuð tónlist!Snjórinn er enn ekki farinn að láta sjá sig, því miður... Það er farið að dimma frekar snemma og er því voða dimmt. Annars finnst mér líka bara að snjórinn eigi að vera kominn í Nóvember! Hér í Noregi er mikið talað um Svínaflensuna (eins og kannski allstaðar). Það eru 15 látnir og margir hafa orðið alvarlega veikir. Á deildinni minni er búið að loka hjartavöknuninni og hún er nú notuð fyrir svínaflensusjúklinga sem eru mjög alvarlega veikir! Í gær var boðið uppá að bólusetja heilbrigðisstafsmenn. Ég var sum sé bólusett í gær! og í nótt og dag var/er ég veik, með hita og leið bara alveg hræðilega...óglatt og mjög íllt í handleggnum! Ég vona hins vegar að þetta líði úr mér fyrir kl hálf átta í fyrramálið, þá á ég nefnilega að mæta á morgunvakt. Og svo annað kvöld liggur leið okkar til Kaupmannahafnar  Við Thomas erum sum sé á leið til Danaveldis í rómantíska helgarferð <3 4 nætur á hóteli, afslappelsi og kósíheit Sara sænska kemur frá Helsingborg á laugardeginum til að hitta okkur, og á laugardagskvöldið er okkur boðið í mat til vinafólks Thomas. Ohh...það verður gott að komast í smá frí. Ætli maður verði ekki að svipast um eftir jólagjöfum líka
Nú ætla ég að fara að græja mig fyrir háttin og spá aðeins í hvað ég ætla að fara með til Köben...því nei nei, ég er ekki byrjuð að pakka.
Unnur
»
20.10.2009 18:33:04 / unnuro
Ég held ég hafi aldrei sagt ykkur frá Blámann. Það er bíllinn okkar, sem er gamli fjölskyldubíllinn foreldra hans Thomas. Þetta er Toyota Carina2 ´84 módel, góður árgangur  Hann gengur og kemur okkur frá A til B, meira biðjum við ekki um. En þannig er mál með vexti að vinstri rúðuþurrka hætti allt í einu að virka. Thomas ætlaði þá að herða aðeins á einhverri skrúfu en þá eyðilagðist hún...ásamt eitthverju rör stykki sem við pöntuðum nýtt. Blámann keyrði þá um í ca viku bara með eina rúðuþurrku, sem betur fer var sú þurrka bílstjórameginn því þetta var rigningamikil vika! Nú svo rann sá dagur upp að nýji hluturinn kom og Thomas ásamt vini sínum fóru niður í skúr að redda málunum. Það kom þá í ljós að til þess að koma nýja hlutnum á sinn stað urðu þeir að taka rúðuþurrku-mótorinn úr og við það voru þeir eitthvað harkalegir þannig að mótorinn eyðilagðist! Nýr rúðuþurrku-mótor var pantaður en það tók nú alveg 4 daga...þannig að Blámann var nú án rúðuþurrkna síðustu viku! Það gékk þó óvenju vel, versta var að vera fyrir aftan bíl sem sletti fullt af drullu á rúðuna. Þið getið rétt ímyndað ykkur! En rúðuþurrkuvandinn komst í lag á föstudaginn, nýji hluturinn kom og Thomas reddaði málunum Eina er að þær stoppa ekki neðst eins og þær eiga að gera heldur á miðri rúðunni...haha!Við brunuðum svo til tengdó í Bardu og vorum þar um helgina. Gott að láta elda ofan í sig og bara slappa af heila helgi  Tengdapabbi kíkti líka aðeins á bílinn, hann reddaði fullt af svona smá hlutum eins og að skifta um perur og þess háttar. Ég tók mig líka til að þreif bílinn að innan! Núna er Blámann sum sé í betra standi, hann er þó farinn að ískra aðeins hér og þar en hann verður að ganga fram í maí/júní...en þá fer hann í gröfina. Mér finnst samt eitthvað við það að eiga gamla bíla. Mér þótti til dæmis mjög vænt um gamla Coltinn minn þó ég hafi bölvað honum nokkrum sinnum
En jæja...nóg um þetta bílatal. Ég er búin að vera heima frá vinnu í dag: hálsbólga, höfuðverkur, kvef og slappleiki = ekki sniðugt að mæta í vinnu! En mikið finnst mér gaman að eiga Nintendo Wii, Thomas er búin að download'a nokkrum leikjum. Spiluðum Mario Go'Kart og Tiger Woods Golf i dag...geggjað stuð 
Meira blogg seinna. Ég æta aðeins að setjast við saumavélina mína Unnur
»
06.10.2009 21:00:49 / unnuro
Ég sit hér undir teppi með tölvuna ásamt heitum kakóbolla og ákvað að skella inn nokkrum línum. Mikið afskaplega er ég löt við að blogga!
Thomas fór til Harstad síðasta fimmtudag en hann var að fara á 9 daga heræfingu, kemur aftur einhverntíma á föstudaginn næsta. Hann er nú mikið á heræfingum núna finnst mér, en hann er á samningi sem segir að hann eigi að vera 25 daga á ári í hernum. Honum finnst þetta fínt enda er þetta svo vel borgað 
September kom og fór. Laugardaginn eftir afmælisdaginn minn hélt ég smá partý og bauð nokkrum vel völdum Það var ofsa huggulegt og enduðum við á smá pöbbarölti.
Talandi um rigningu þá hefur útivistar-regnjakkinn sem Thomas gaf mér í afmælisgjöf komið sér mjög vel því það rigdi næstum því á hverjum degi í svona 2 vikur eða e-ð! En í morgun var jörðin hvít og er orðið ansi kalt, það fer því að koma að því að ég taki fram vetrarjakkana mína...
Í vinnunni gengur vel, ennþá er mikið að gera og ég er alveg úrvinda þegar ég kem heim en samstarfsfólk mitt segir að það taki ca hálft ár að komast í vinnu-rútínu. þannig að ég venst þessu líklega. Það var allavega ekki slæmt að fá launaseðilinn 
Núna síðastliðna helgi bauð ég Jenny og Helene hingað á föstudaginn. Við spjölluðum, horfðum á imbann og spiluðum spil og svo gistu þær hér. Ekker smá gaman að hafa svona stelpukvöld  Á laugardaginn fór ég svo í "vinnu"partý hjá stelpu sem ég vinn með. Gaman að hitta þetta lið svona utan vinnutíma. Enduðum að sjálfsögðu niðrí bæ á böbbarölti en ég var bara róleg og fór heim hálf 3. Á sunnudag fór ég svo í snemmbúinn kvöldmat til Jenny og við fórum svo í helljarinnar kvöldgöngu (3 tíma!). Ekkert smá hressandi, langar að fara út að ganga á hverju kvöldi! Markmiðið er allavega að fara í svona hálftíma - klukkutíma göngu 4 kvöld í viku!
Við Thomas erum búin að fjárfesta í Nintendo Wii og það er sko allgjör snilld! Keyptum líka Wii Fit þannig að ég er farin að æfa heima í stofu 
Núna er líklega kominn háttatími, ég er að fara á morgunvakt í fyrramálið og klukkan orðin 23... Ég reyni að skella inn myndum frá sumrinu og af prjónaskapnum á morgun eða hinn!
Góða nótt Unnur
»
02.09.2009 15:21:22 / unnuro
Já ég sit hér ein í kotinu. Í dag er svakaleg rigning í Tromsø. Thomas fór til Bardu á mánudag, hann er að aðstoða við undirbúning heræfingar og kemur ekki heim fyrr en á föstudag. Síðasta helgi var bara mjög fín! Við kíktum á hátíðina á föstudag og sáum 4 tónleika svo fórum við bara snemma heim. Á laugardag var mér svo boðið í skírn og fór mikið af deginum í það...kaffi og þess háttar. Við Thomas skelltum okkur svo um kvöldið aftur á hátíðina og sáum 3 tónleika: DumDum boys, Alphaville og Snoop Dogg! Mér þótti sá síðastnefndi agalega svalur! Þó ég hafi séð hann árið 2005 var þetta eiginlega bara skemmtilegra... Við kíktum svo aðeins út á lífið með vinum hans Thomas.Sunnudagurinn fór í leti, brauðbakstur og þvott  Á mánudaginn var ég viðstödd hjartaaðgerð, í annað sinn! Þessi aðgerð var mun fljótlegri en sú fyrri. Enn engu að síður mjög fróðlegt að fá að vera með  Ég var svo með sjúklingum inni á vöknun og fylgdi honum áfram í gær. Í kvöld er ég að fara á næturvakt! Það verða tvær í röð núna, svo verð ég að vinna morgunvakt á lau og kvöld á sunnudag. Annars er ekki svo mikið fréttnæmt...nema hvað að ég er byrjuð í HipHop tíma hjá öðrum hóp. Alltaf gaman að læra meira. Ég hef ákveðið að taka pásu sem kennari hjá Dansademika þetta árið, en svo erum við í vandræðum að finna nýja kennara...þannig að það gæti verið að ég láti tala mig til. Ég er enn varaformaður dansfélagsins Dansademika og stjórnarmeðlimur Íþróttafélags námsmanna í Tromsø. Þannig að það er alltaf nóg að gera í þeim efnum 
En jæja..ég hef þetta ekki lengra í bili, ætla að undirbúa mig andlega fyrir nóttina  Unnur
»
27.08.2009 11:06:19 / unnuro
Ég hef ákveðið að vekja síðuna mína til lífs á ný! Mikið hefur gerst undanfarið og ætlað ég að reyna að segjafrá öllu í frekar stuttu máli: Um miðjan Júní komu mamma, Júlli og Amalía í heimsókn tilokkar í Tromsø og voru í 12 daga. Þann sama dag lauk ég lokaprófinu íháskólanum. 19. Júní var útskriftin og var það hátíðleg stund í skólanum semlauk með kaffi og köku. Ég er sumsé orðin löggiltur hjúkrunarfræðingur Á meðan mamma og co voru hér gerðum við margt skemmtilegt.Við héldum uppá 17.júní með Íslendingafélaginu og hlupum kvennahlaupið. Fórum íPolar Zoo og sáum m.a hirti, birni, úlfa og lítil lömb Við fórum líka í Polaria og sáum seli og allskonar fiska og krabba. Í Tromsømuseum var margt skemmtilegt að sjá og enduðum við þann dag í Ölhallen, góðursopinn þar Mamma og þau fóru svo aftur heim til Íslands þann 28.júní.Vonandi koma þau aftur einhverntíma því það var alveg yndislegt að hafa þau! Næstu tvær vikur fóru í að vinna nokkrar vaktir og heimsækja tengdó. Við Thomas hjálpuðum þeim aðeins í sumar og máluðum húsið Þann 15. Júlí lá svo leið okkar á grísku eyjuna Rhodos. Þarvorum við í sól og hita í 10 daga. Mest allur tíminn fór í að slappa af, buslaí laug eða sjó og liggja í sólbaði. Ekki má gleyma því að við fórum írennibrautagarð og það var náttúrlega bara geggjað gaman sko! Hljóp á millibrauta eins og ég væri smákrakki Alveg dásamleg ferð! Þegar við lentum í Osló 26. Júlí fórum við beint tilFredrikstad en þar býr systir hans Thomas með sambýlismanni sínum og dótturþeirra. Við gistum hjá þeim í tvær nætur. Þaðan lá leiðin til Bö í Telemark þarsem við heimsóttum Björk, Ösp og Steffý, en þær stöllur hafa unnið írennibrautagarðinum Sommerland í sumar. Þar gistum við líka í tvær nætur oghöfðum rosa gaman. Við fórum í rennibrautagarðin og hlupum milli brauta meðbláar varir og gæsahúð! Við vorum nefnilega svo óheppin að missa af góðaveðrinu, það var bara skýjað og rigning Það var samt agalega gaman að vera hjá stelpunum! Leið okkar lá svo aftur til Oslóar og Gunna var svo góð aðbjóða okkur gistingu. Þegar við komum til hennar var herramanns máltíð borin áborð ásamt góðum drykk Næsta dag var svo bara komið að því, 31. Júlí og loksins áleið til Íslands! Mamma sótti okkur á völlinn og við brunuðum beinustu leið til Dóru frænku. Fengum okkur aðeins í glas og spjölluðum fram á nótt. Við vorum í rvk í 2 daga, hittum ömmur og slíkt og fórum í fjölskylduferð - keyrðum Gullna hringinn. Það var ofboðslega flott að sjá Þingvelli, Geysi og Gullfoss, og gaman að sýna Thomas íslenska náttúru Við enduðum ferðina á unaðslegrimáltíð á Rauða húsinu á Eyrarbakka – frábær dagur! Við mamma, Thomas, Amalía, Kristjana og amma Unnur keyrðum svo norður á mánudegi. Á þriðjudeginum, miðvikudeginum, fimmtudeginum og föstudeginum jókst svo mannfjöldinn í Sunnuhvoli og í garðinum hjá okkur. Fiskidagsundirbúningur fór á fullt Stóri dagurinn rann upp og var að sjálfsögðu gríðarlegt stuð! Pallurinn hjá okkur fylltist, orgelið, trommusettið og önnur hjóðfæri voru komin á sinn stað og það var sungið fram á nótt Veðrið á fiskidaginn var æði, sól og fínerí. Maturinn var líka góður og fínasta dagsskrá á sviðinu. Mér fannst þó skemmtilegast að sjá fjölskyldu Rúnars. Flugeldasýningin um kvöldið var enn flottari en áður, Thomas sagðist skilja afhverju Ísland hafði farið á hausinn Þetta var rosalegt! Síðasta vikan á Íslandi fór í að hitta vini og hafa það gott í faðmi fjölskyldunnar. Við fórum í hvalaskoðun með Þórdísi, í Jarðböðin á Mývatni og fengum okkur Brynjuís Ég fór líka í sneiðmyndir á sjúkrahúsinu og svo í viðtal. Læknirinn minn sagði að ég mætti bara vera ánægð með mig, skoðunin kom vel út. Nú á ég að mæta í myndatökur aftur næsta sumar, svo eftir það verður lengra milli skoðanna. Allt gott og blessað! Þann 14.ágúst kvöddum við Dalvík og Ísland og héldum aftur alla leið til Tromsø. Ég skal viðurkenna að það var píu gott að koma heim í íbúðina síða eftir að hafa verið á flakki á mánuð. En strax daginn eftir að við komum heim fórum við í 50 ára afmælisveislu til Brynju. Góður matur og skemmtileg veisla! Svo á mánudeginum byrjaði ég að vinna. Er að vinna 100% á hjarta-lugna-æða skurðlækningadeild. Þetta er spennandi deild, mikið að gera og margt að læra. Það er þó skrýtið að vera byrjuð að vinna á fullu og vera ekkert í skóla. Þarf að fara að venjast því að þegar ég er ekki í vinnunni þá er ég í fríi…finnst ennþá eins og ég ætti að vera að gera eitthvað allan tímann… Það eru kannski ekki margir sem komust gegnum þennan pistil, en vonandi nokkrir- kvittið gjarnan. Nú er sumsé hversdagsleikinn byrjaður hjá okkur í Tromsø. Ég í vinnunni og Thomas byrjaður í skólanum. Síðasta árið hans í master í viðskipti og stjórnun. Um helgina ætlum við að skella okkur á tónlistarhátíðina Døgnvill. Þar spila m.a SnoopDogg! Og halleluja strákarnir, Alexander Rybak, Timbuktu og DumDum boys. Þetta verður væntanlega svaðalegt stuð! Segi meira frá því seinna Unnur
»
08.06.2009 21:12:26 / unnuro
Ákvað að skella inn einu bloggi þegar ég áttaði mig á því að það er nú svoldið langt síðan síðast!
Bachelorritgeriðinni var skilað 20.maí og á morgun fæ ég að vita einkunnina! Fæ þá á sama tíma vita hvenær ég á að mæta í munnlegt próf þar sem ég á að styðja verkefnið mitt. Vona bara að allt þetta gangi vel! 
Ég kom frá Osló í dag, en ég fór þangað á föstudaginn. Tilgangur ferðarinnar var að fara á þjálfaranámskeið í Streetdance. Ég var svo heppin að eiga tíma á föstudaginn og hitti Gunnu. Við fórum út að borða og röltum um helstu götur Óslóar. Á laugardaginum var námskeið frá 10-18 og svo á sunnudeginum var smá upprifjun frá því á lau og svo próf! Einn og einn í einu, og áttum við fyrst að sýna dans sem við áttum að semja sjálf, ásamt upphitunar dansi. Síðan var munnlegt próf þar sem við vorum spurð úr efninu. Ég stóðst prófið með góðum árangri Þannig að nú á ég skirteini uppá að hafa tekið "Trener 1 kurs" í Streetdance! Að prófi loknu á sunnudaginn fór ég og hitti Gunnu. Fórum heim til hennar þar sem hún dældi í mig yndælis mat og drukkum rauðvín með. Gisti hjá henni og kom sum sé heim í dag.
Hér heima er frekar tómlegt en Thomas er á æfingu með hernum. Hann vann í hernum í tvö ár áður enn hann fór í háskólann og skrifaði undir samning um að mæta á æfingar 25 daga á ári. Þetta er vel borgað en ég held að honum finnist þetta nú ekkert spes skemmtilegt. Hann kemur heim á föstudaginn
Á morgun er bara vika í að mamma, Júlli og Amalía mæta á svæðið...og je minn eini ég er að sprínga úr tilhlökkun! Ég verð þó að reyna að hugsa ekki mikið um það núna en frekar einbeita mér að síðasta prófinu! Ég fæ sum sé að vita á morgun hvenær ég á að fara í próf, svo eftir það er ég bara búin!!! Orðin hjúkka og alles  Útskriftin er 19.júní, mjög einföld og ekkert neitt mikið húllumhæ. En þá fáum við allavega pappírana afhenta og það verður myndataka. Ég er komin með vinnu, mun byrja að vinna á hjarta, lungna og æða skurðlækningadeild 17.ágúst! Ætla bara að taka nokkrar vaktir í sumar en annars bara njóta þess að vera í fríi. Hafa það gott með fjölskyldunni og svo fara í ferðalag 
En jæja, ég ætla skella mér í rúmið svo ég verði klár í lestrinum á morgun!
Unnur
»
15.05.2009 13:52:23 / unnuro
Ég er búin að vera á kafi í lokaverkefninu mínu undanfarið...hef orðið leið, pirruð, þreytt, stressuð og allt sem þessu fylgir! En núna sér maður loks fyrir endann á þessu, 5 dagar í skil og ég rétt að verða búin Ætla að verðlauna mér á skiladaginn sjálfann með því að fara í klippingu, hef ekki farið síðan í des.! Ég er líka búin að fara í 3 atvinnuviðtöl, á hjarta, lungna skurðlækningadeild (þar sem ég hef verið að vinna), krabbameinsdeildinni og taugadeildinni. Er meira að segja búin að fá tilboð, núna veit ég bara eiginlega ekkert hvaða tilboði ég á að taka... 
Á sunnudaginn 17.maí er þjóðhátíðardagur Noregs, foreldrar hans Thomas koma á morgun og gista eina nótt hérna. Við ætlum að elda eitthvað gott handa þeim á morgun og svo förum við út að borða á sunnudaginn 
Gaman að sjá Ísland komast áfram í Júró, hlakka til að sjá hvernig allt fer á morgun! Ég verð nú bara að viðurkenna það að ef eitthvað austur evrópskt land vinnur þá verð ég nett pirruð út í þessa keppni!
Annars er vorið komið í Tromsø og vonandi helst það þannig! Kvöldsólin kemur á svalirnar okkar og er alveg yndilegt að horfa út...enda er útsýnið okkar frábært!  Ég hlakka líka alveg óendanlega til að mamma, Júlli og Amalía koma í heimsókn til mín...styttist óðum!
Reyndar fer ég til Osló fyrstu helgina í júní á þjálfaranámskeið í Street dance! Það verður líka geggjað 
Meira seinna...verð að halda áfram með verkefnið mitt.
Unnur
»
26.04.2009 13:36:39 / unnuro
Titillinn er bara vegna sumardagsins fyrsta á Íslandi, hér er enginn dagur sem ber nafnið sumardagurinn fyrsti og ekki er nú svo sumarlegt úti heldur! Þrátt fyrir það finn ég nú fyrir því að vorið er farið á kíkja á okkur hér í Tromsø, snjókoman í síðustu viku er núna rigning og hefur mikið bráðnað Hér gengur allt sinn vanagang, ég er að skrifa lokaverkefnið mitt og verð ég nú barasta að viðurkenna það að þetta gengur afskaplega hægt...en ég brotna ekki og verð bara að spýta í lófana! Ég tek svo aukavaktir inná milli á hjartaskurðdeildinni til þess að eiga fyrir leigu og mat...en mikið er mig farið að langa að kíkja í búðir. Ekki það að mig vanti neitt, bara svona til að kíkka  Ég er byrjuð að sækja um vinnu og er nú þegar búin að sækja um á 4 deildum á sjúkrahúsinu, verður spennandi að sjá hvað gerist í þeim efnum  Á föstudaginn var lokapartý hjá bekknum. Ákváðum að halda partýið núna þó við séum nú ekki búin fyrr en í júní. Ágætis mæting og bara gaman Kíkti svo aðeins niðrí bæ en Thomas sótti mig svo kl 2, svo góður þessi elska!Í gærkvöldi var ég að sýna HipHop með 6 öðrum stelpum, heppnaðist sýningin bara vel og þetta var auðvitað bara gaman eins og alltaf! Ég held ég verði nú að halda smá sýningu í sumar til að sýna ykkur hvað ég hef verið að bralla hér í Tromsø  Ég hef nú nýtt símann minn vel og reyni að hringja heim nokkrum sinnum í viku. Hef örugglega talað meira við fjölskyldu mína síðustu vikur en samanlagt fyrstu tvö árin hér! En mér finnst voða gott að geta hringt heim og ekki þurfa að hugsa um að það sé svo agalega dýrt! Eins og ég sagði, hér er svosem ekkert nýtt að frétta. -Back to the books- Knús - Unnur
»
08.04.2009 17:59:06 / unnuro
Ég er stödd á Setermoen í Bardu hjá tengdó. Við Thomas komum hingað á fimmtudaginn, tekur ca 2 tíma að keyra inn í land. Hér lifum við í vellystingum, vöknum í morgunverðarborð á hverjum degi, fáum góðann mat og höfum það gott! Á föstudag vorum við bara innanhúss og lærðum, og á laugardaginn fórum við með tengdó í bíltúr. Keyrðum í u.þ.b klukkutíma og skoðuðum þar bústað sem tengdó eru að íhuga að kaupa. Fórum svo þaðan í næsta kaupstað - Finnsnes og drukkum kaffi  Á sunnudaginn fórum við á gönguskíði, en hér í Noregi snúast páskarnir um gönguskíði, appelsínur og kvikk lunsj (súkkulaðitegund). Gott veður, sól og fínerí! Um kvöldið kom svo systir hans Thomas með sambýlismanni sínum (Berit og Morten) og dóttur þeirra, sem er rúmlega 1.árs. Fyrsta skipti sem ég hitti þau og eru þau bara ágætis fólk  Mánudagurinn var rólegheitar dagur, við Thomas fórum að hitta vin hans og svo var bara slappað af. Í gær keyrðum við Thomas, Berit og Morten til Målselv Fjellandsby en það er skíðasvæði (lyftur og þess háttar). Við vorum sum sé á svigskíðum og skemmtum okkur mjög vel! Dagurinn í dag hefur verið nýttur í lærdóm, en ég get þó ekki sagt að ég hafi komist yfir mikið  Vinnan við Bs. gengur samt í rétta átt, hægt og rólega, hægt og róóólega! Á föstudag förum við Thomas aftur heim til Tromsø. Ég á að mæta í vinnu hálf átta á laugardagsmorguninn og vinn líka á sunnudaginn - peningar!
Það er nú alltaf gaman að geta hlakkað til einhvers framundan og er nóg í væntum hjá mér. Eftir ca 2 mánuði koma mamma, Júlli og Amalía í heimsókn og verða í 12 daga! Svo í júlí förum við Thomas til Rhodos í Grikklandi í 10 daga. Verðum svo 5 daga í Osló og nágrenni, síðan liggur leiðin beint heim á klakann þar sem við verðum í 14 daga Eins og þið sjáið...stuð framundan! þetta verður æðislegt sumar!
En jæja, ég segi bara Gleðilega páska!
Unnur
»
Síður: 1 2 3 ... 16
|
Heimsóknir
Í dag: 38 Alls: 52027
|